Tómas Ingi 5 ára

Tómas Ingi 5 ára

Á sunnudaginn, 11. maí, verður Tómas Ingi 5 ára. Við héldum upp á daginn hans í leikskólanum í dag. Hann bjó sér til glæsilega kórónu, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni ásamt Úlfi Berg, flaggaði íslenska fánanum og svo sungu allir afmælissönginn fyrir hann hátt og snjallt. Við óskum Tómasi Inga og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.