Tökum forskot á 17. júní!!!

Jay og Wes sýna „GEGGL“ listir sínar í íþróttamiðstöðinni, laugardaginn 11. júní kl. 17:00.
Aðgangur ókeypis í boði félagsmiðstöðvarinnar og Íþrótta- og æskulýðsráðs.

Allir velkomnir.

Frítt námskeið að lokinni sýningu!!!

Jay Gilligan og Wes Peden hafa sýnt samtals í 43 löndum og hafa samanlagða reynslu í 44 ár. Þeir hafa t.d. sýnt reglulega hjá konungsfjölskyldunni í Svíþjóð þar sem þeir eru búsettir. Þeir eru hér á ferð á milli sýninga í Ameríku og á leið til Evrópu. Þeir státa af heimsmeti í Guiness Book World Record í geggli á sem mestum hlutum á milli 2 manneskja. Þeir sýna og vekja undrun með ótrúlegu samspili og tækni sem þeir sýna með húmor og koma áhorfendum stanslaust á óvart með spuna og leikni.

Sjá: http://www.vimeo.com/22936569