Töf á álagningu fasteignagjalda

Töf á álagningu fasteignagjalda

Undanfarið hefur verið unnið að álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2022. Eftir að búið var að senda álagningarseðlana frá okkur til birtingar uppgötvaðist að villa var í einum gjaldliðnum og margir álagningarseðlar af þeim sem eru aðgengilegir á island.is því rangir.

Unnið er að breytingaálagningu þar sem þessi villa er löguð og munu nýir álagningarseðlar verða birtir eftir helgina. Vegna þessara tafa verður fyrsti gjalddagi fasteignagjalda því ekki heldur sendur út fyrr en eftir helgi.

Við biðjumst innilegrar velvirðingar á þessum töfum.