Tillögur vegna opna svæðis við Kátakot

Tillögur vegna opna svæðis við Kátakot

Eins og mörgum er kunnugt verður húsnæði Kátakots ( Hólavegur 1 ) selt þegar núverandi starfsemi verður flutt í nýbyggingu við Krílakot.

Gert er ráð fyrir að húsið verði selt en opna svæðið sunnan við húsið, sem hefur verið tengt leikskólanum, mun áfram þjóna öllum íbúum sveitarfélagsins.

Hér með er óskað eftir tillögum að notkun á þessu svæði, sjá skýringarmynd.


Tillögur sendist á umhverfis- og tæknisvið, Ráðhúsinu, 620 Dalvík
eða á netfangið borkur@dalvikurbyggd.is  fyrir 14. júní 2016.


Virðingarfyllst,

Börkur Þór Ottósson
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs