Tilkynning v. fyrirhugaðs kynningar- og samráðsfundar

Tilkynning v. fyrirhugaðs kynningar- og samráðsfundar

Í ljósi alls sem á sér stað í samfélaginu okkar um þessar mundir hefur sú ákvörðun verið tekin að fella niður fyrirhugaðan kynningar- og samráðsfund sem halda átti í Bergi miðvikudaginn 18. mars kl. 15:15-19:00. Þess í stað verða kynningargögn birt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og FB síðu sveitarfélagsins. Óskað er eftir ábendingum, tillögum og sjónarmiðum um fyrirhugaða endurskoðun aðalskipulagsins. Þær skulu vera skriflegar og sendar eigi síðar en 27. mars 2020 til:

Umhverfis- og tæknisviðs
Ráðhúsinu
620 Dalvík
v/aðalskipulags

eða í tölvupósti til sviðsstjóra umhverfis- tæknisviðs á borkur@dalvikurbyggd.is
efni: v/aðalskipulags

Tilgreina skal nafn, kennitölu og heimilisfang í innsendum gögnum.

Börkur Þór Ottósson
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs