Tilkynning frá Motus vegna innheimtuviðvarana

Motus vill vekja athygli á því að hluti innheimtuviðvaranna, sem sendar voru út frá miðjum nóvember til loka nóvember, fyrir hönd Dalvíkurbyggðar frá Motus ehf., voru sendar út vegna mistaka. Í einhverjum tilvikum fengu viðskiptavinir Dalvíkurbyggðar viðvörun um tvo ógreidda reikninga í sitthvorum bankanum í stað eins, en krafa Landsbankans er sú sem á rétt á sér.

Kunni krafan að hafa verið greidd þá hefur henni verið lokað í kerfum Motus. Bréf um þetta verður sent frá Motus til þeirra sem hlut eiga að máli.

Motus harmar þessi mistök og biður Dalvíkurbyggð og aðra hlutaðeigandi velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.