Tilkynning frá íþróttamiðstöðinni

Tilkynning frá íþróttamiðstöðinni

Félög innan BSRB hafa boðað vinnustöðvun á miðnætti á laugardaginn 27. maí í sundlaugum og íþróttahúsum sem stendur til miðnættis mánudaginn 29. maí.

Ef BSRB og Samninganefnd sveitarfélaga ná ekki að semja fyrir þann tíma mun íþróttamiðstöðin á Dalvík vera lokuð frá laugardeginum 27. maí til (og með) mánudagsins 29. maí.

Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar