Tilkynning frá Dalbæ

Tilkynning frá Dalbæ

Sóttvarnalæknir beinir því til rekstraraðila hjúkrunarheimila  koma eftirfarandi skilaboðum 
um 
smitvarnir vegna kórónaveiru (COVID-19) á framfæri til þeirra sem málið varðar: 

Íbúar hjúkrunarheimila eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma. 
Þeir eru því í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. 

Við viljum því biðja þá sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega 
til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis að gæta varúðar 
og koma ekki í  heimsóknir á hjúkrunarheimilið. 

Mikilvægt er að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum 
og hafa því  ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitasta af veirunni hafi eftirfarandi í huga: 

  • Handþvottur er mikilvægasta ráðið til  forðast smit og einnig er mikilvægt  nota handspritt
    Hafið þetta alltaf í huga þegar komið er inn á heimilin. 
  • Forðist alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handaböndfaðmlög og kossa við íbúa. 
  • Forðist  koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna. 

Við bendum ykkur á að kynna ykkur leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins  
því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.