Tilboð opnuð í verkið "Dalvíkurhöfn - ferjubryggja, þekja og lagnir"

Frá Siglingastofnun:

Fimmtudaginn 27. maí 2010 kl. 11:00 voru opnuð tilboð í verkið "Dalvíkurhöfn - ferjubryggja, þekja og lagnir." Tilboð voru opnuð samtímis á skrifstofu Siglingastofnunar Íslands, Kópavogi og á skrifstofu Dalvíkurbyggðar.

Tilboðsgjafi  -  Upphæð

1. ÁÁ verktakar ehf. Kr. 27.299.247.-

2. Íslenska gámafélagið ehf. Kr. 29.993.394.-

3. Tréverk ehf. Kr. 26.434.950.-

4. Sigurður Björgvin Björnsson, Dalvík Kr. 25.563.000.-

5. Katla ehf. byggingarfélag Kr. 24.983.100.-

6. Steypustöðin Dalvík ehf. Kr. 24.252.650.-

Kostnaðaráætlun verkkaupa Kr. 26.829.010.-


Spurt var um athugasemdir fyrir og eftir opnun en engar gerðar.