Tilboð í stækkun smábátahafnar

Hafnarstjórn Dalvíkurbyggðar óskar eftir tilboðum í stækkun smábátahafnar á Dalvík. Verkið felst í dýpkun, grjótvörn, steypu landstöpuls og uppsetningu flotbryggju.

Helstu magntölur:

Dýpkun - um 4.000 m3
Flokkað grjót og kjarni - um 300 m3
Landstöpull - 1 stk
Flotbryggja - 30m

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2012.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglingastofnunar, Vesturvör 2 í Kópavogi og á skrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu á Dalvík frá og með mánudeginum 30. apríl 2012, gegn 5.000 kr. greiðslu.

Tilboð verða opnuð á sömu stöðum þriðjudaginn 15. maí 2012 kl. 11.00.