Tilboð í framkvæmd á ræstingum

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í framkvæmd á daglegum ræstingum í Ráðhúsi Dalvíkur, bæjarskrifstofu og kjallara, og fyrir hönd Menningarfélagsins Bergs ses. í Menningarhúsinu Bergi.

Útboðsgögn og nánari lýsingu er hægt að nálgast í þjónustuveri bæjarskrifstofu Dalvíkurbyggðar á 1. hæð frá og með 24. júní 2009.

Upphaf verks er 1. ágúst 2009 vegna Menningarhússins Bergs og 1. október 2009 vegna bæjarskrifstofu og kjallara í Ráðhúsi Dalvíkur.

Frestur til að skila inn tilboðum samkvæmt útboðsgögnum er til og með 6. júlí 2009 kl.10:00.

Dalvík, 19. júní 2009,

f.h. Dalvíkurbyggðar,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir,
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.