Til leigjenda íbúðahúsnæðis í Dalvíkurbyggð

Leigjendum í Dalvíkurbyggð er bent á að hægt er að sækja um sérstakar húsaleigubætur hjá sveitarfélaginu.

Sérstakar húsaleigubætur eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum sem félagsleg aðstoð til að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og/eða annara félagslegra erfiðleika.
Sérstakar húsaleigubætur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu á almennum markaði umfram almennar húsaleigubætur og þarf umsækjandi að vera orðinn 18 ára.

Sótt skal um sérstakar húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár.

Upplýsinga má leita hjá Arnheiði Hallgrímsdóttur á netfanginu heida@dalvikurbyggd.is