Til foreldra barna í leik- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar

Til foreldra barna í leik- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar

Í samráði við fræðslu- og sveitarstjóra hefur verið ákveðið að vera með starfsdag í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins mánudaginn 16. mars. Þá mun starfsfólk skólanna undirbúa kennslu næstu vikna og gera ráðstafanir í samræmi við fyrirmæli almannavarna. Starfsemin verður með breyttu sniði frá og með 17. mars og við biðjum ykkur að fylgjast vel með upplýsingum frá skólunum sem sendar verða til ykkar á mánudag.

Með kveðju,
skólastjórnendur í Dalvíkurbyggð