Þuríður Oddný 5 ára

Þuríður Oddný 5 ára

Á sunnudaginn, 5. maí, verður Þuríður Oddný 5 ára. Við héldum uppá afmælið hennar í leikskólanum í dag með því að leyfa henni að gera sér glæsilega kórónu, hún flaggaði íslenska fánanum og bauð upp á ávextina. Svo sungum við auðvitað afmælissönginn fyrir hana. Það var svo ekki ónýtt að fá töframanninn Einar í afmælið sitt. Við óskum Þuríði Oddnýju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.