Dalvíkurskóli auglýsir nú þrjú spennandi störf laus til umsóknar fyrir komandi starfsár. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja taka þátt í fjölbreyttu og öflugu skólastarfi í góðu samfélagi.
Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn er teymiskennsluskóli, vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans.
Nánari upplýsingar um störfin og umsóknarfrest má finna hér