Þrekæfingar Skíðafélagsins

Nú eru að hefjast þrekæfingar hjá 11 ára -13 ára (6.-8. bekk) fram að skíðavertíð en æfingar hefjast í dag þriðjudaginn 22. september. Í haust verða æfingar þrisvar sinnum í viku, ein útiæfing meðan aðstæður leyfa og tvær inniæfingar í íþróttahúsinu. Á þriðjudögum verður útiæfing frá kl 17-18, mæting við Brekkusel. Á fimmtudögum frá kl 17-18 í september og frá kl 16-17 eftir það fram að skíðavertíð. Á sunnudögum verður svo æfing frá kl 17-18. Æfingagjald fyrir haustæfingar er 7000.-


Þjálfari er Harpa Rut Heimisdóttir íþróttafræðingur GSM: 8663464


Skíðafélag Dalvíkur


www.skidalvik.is