Þorsteinn K. Björnsson ráðinn sem bæjartæknifræðingur

Samkvæmt fundagerð bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 9. maí 2006 hefur Þorsteinn K. Björnsson verið ráðinn sem bæjartæknifræðingur Dalvíkurbyggðar (sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs).

Þorsteinn hefur starfað hjá Dalvíkurbyggð síðan 1997 sem veitustjóri, en hefur jafnframt leyst af fráfarandi bæjartæknifræðing í gegnum tíðina og þekkir því vel til innan umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar.

Þorsteinn starfaði áður sem bæjartæknifræðingur hjá Ólafsfjarðabæ og var m.a. rekstrarstjóri Vatnsveitu Dalvíkur í nokkur ár. Einnig hefur Þorsteinn komið að verklegum framkvæmdum víða um land.