Þorrablót Svarfdælinga 28.janúar

Þorrablót Svarfdælinga verður haldið að Rimum laugardaginn 28. janúar 2012

Húsið opnar kl. 19:30 og mun borðhald hefjast kl. 20:30. Miðaverð er 2.500.- og verður tekið við pöntunum frá og með fimmtudeginum 19. janúar og fram á sunnudagskvöldið 22. janúar.

Eftirtaldir taka við miðapöntunum:
Árni Siggi og Hanna á Hofi............................................Sími: 466 1511
Halla og Atli á Hóli........................................................Sími: 466 1537

Miða þarf að sækja að Rimum fimmtudagskvöldið 26.janúar milli kl. 20:00 og 22:00. Aðeins er tekið við reiðufé, enginn posi er á staðnum.

Nefndin