Þjóðhátíðardagurinn 17. júní - dagskrá

Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
 
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS. Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
 
Kl. 12:30 Andlitsmálning í anddyri íþróttamiðstöðvar – ókeypis andlitsmálning fyrir krakka - allir verða tilbúnir fyrir fyrir skrúðgönguna og átök dagsins!
 
Byggðasafnið Hvoll verður opið frá kl. 11:00 - kl. 18:00. Lífsdagbók ástarskálds. Ævi og ástir Páls Ólafssonar .
 
Kl. 13:30 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Dalvíkurkirkju í fylgd Slökkviliðs Dalvíkur. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána, veifur, lúðra og hrossabresti!
 
Kl. 14:00 Hátíðarstund í Dalvíkurkirkju
Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða dagsins
Tónlistaratriði
Hátíðarkaffi - knattspyrnudeild UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund. Verð 13 ára og eldri 1.200 kr, börn 6 - 12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0—6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl. 17:00.

 Kl. 14:30 Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við kirkju að lokinni hátíðarstund.

Kl. 14:45 Karamellurigning - Elvar Antonsson dreifir góðgæti af himni ofan í kirkjubrekkuna.
Við biðjum foreldra að gæta þess að eldri börn fari varlega og hlaupi ekki þau yngri niður í baráttu um karamellurnar - það er nóg handa öllum!

Kl. 15::00 Slökkviliðið sýnir bíla við kirkjuna.
 
Leiktæki í umsjón Björgunarsveitarinnar í kirkjubrekkunni. Vatnsrennibrautin góða á sínum stað, þrautabraut/hjólarallí verður á staðnum og nú bjóðum við líka upp á nýtt atriði sem er sápufótbolti. Þeir sem ætla í rennibrautina og sápuboltann mæti í fötum sem mega blotna og hjólreiðamenn á hjólum.

 
Kl. 18:30 — 21:00 Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir - frítt inn!

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

ÍÞRÓTTA– OG ÆSKULÝÐSRÁÐ DALVÍKURBYGGÐAR
ÍÞRÓTTA-OG ÆSKULÝÐSFULLTRÚINN Í DALVÍKURBYGGÐ