Kosning á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar 2018.

Kosning á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar 2018.

Samkvæmt reglum Dalvíkurbyggðar um kjör á íþróttamanni ársins skal fara fram íbúakosning sem gildir á móti kosningu aðal- og varamanna í íþrótta- og æskulýðsráði.
Kosning fer fram með þeim hætti að allir sem eru orðnir 15 ára geta kosið og er það gert í gegnum Mín Dalvíkurbyggð.

Leiðbeiningar um kosningu: 

Þú byrjar á að kynna þér upplýsingar um tilnefnda aðila með því að smella hér

Síðan ferð þú inn á íbúagátt Dalvíkurbyggðar, velur kosningar og kýst þann aðila sem þú telur eiga skilið að hljóta titilinn „íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2018“.
Þú kemst inn á íbúagáttina með því að smella hér.

Hægt verður að kjósa um íþróttamann til og með mánudagsins 14. janúar 2019. 

Samanlögð kosning íbúa og fulltrúa í íþrótta- og æskulýðsráði mun svo ráða úrslitum um það hver verður kjörinn.

Reglur um kjör á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar er að finna hér:
https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/ithrottamadur-dalvikurbyggdar.pdf

Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar verður lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Bergi fimmtudaginn 17. janúar 2018 kl. 17:00.

Tilnefningar

Íþróttagrein

Amanda Guðrún Bjarnadóttir

 Golf

Andrea Björk Birkisdóttir

Skíði

Ingvi Örn Friðriksson

Kraftlyftingar

Snorri Eldjárn Hauksson

Knattspyrna

Svavar Örn Hreiðarsson

Hestar

Viktor Hugi Júlíusson

Frjálsar