Takmörkun á vatnsnotkun aflétt - tilkynning til íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og dreifbýli

Takmörkun á vatnsnotkun aflétt - tilkynning til íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og dreifbýli

Með vísan til tilkynningar sem borin var út til íbúa 24. mars sl. er hér með takmörkunum á hefðbundinni vatnsnotkun aflétt.

Markvisst hefur verið unnið að úrbótum og hefur neysluvatnskerfið náð að hreinsa sig.

Vatnsveitan vill biðja íbúa á Árskógssandi, Hauganesi og dreifbýli velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta ástand hefur skapað þeim.

 

Vatnsveita Dalvíkurbyggðar