Sýningu grunnskólanema um heimabyggðina lýkur 6. október


Nú fer hver að verða síðastur til þess að skoða mjög skemmtilega sýningu grunnskólanema um heimabyggðina í Bergi, en henni lýkur á morgun, 6. október. Vetrarstarfið í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar hófst með spennandi þemaverkefni um heimabyggðina. Á sýningunni  má sjá sýnishorn af vinnu barnanna.