Sýningaropnun í Bergi 3. ágúst - Ég fjörugum fiskum með færinu næ

Sýningaropnun í Bergi 3. ágúst - Ég fjörugum fiskum með færinu næ


Þriðjudaginn 3. ágúst kl 19.30 opnar Gréta Arngrímsdóttir sýningu á þæfðum ullarfiskum, í menningarhúsinu Bergi. Sýningin ber yfirskriftina "Ég fjörugum fiskum með færinu næ" og verður hún opin Fiskidagsvikuna frá kl. 11:00 til kl 22:00 nema þegar tónleikar eru í sal Bergs.

Sýningin stendur til miðvikudagsins 18. ágúst.

Fiskarnir bera allir nöfn úr textum Emiliönu Torrini.

Opnunarími sýningarinnar er sá sami og Kaffihússins í Bergi.