Sýning á barnamunum í Ráðhúsinu

Sýning á barnamunum í Ráðhúsinu

Opnuð var sýning í Ráðhúsinu í gær þriðjudag og mun hún standa fram á vor. Um er að ræða sýningu á munum er tengjast börnum. Gömul leikföng, bækur, myndir og málverk er að finna í sýningunni. Bókasafn Dalvíkur, Héraðsskjalasafn Svarfdæla og Byggðasafnið Hvoll tóku höndum saman til að bjóða uppá þessa flottu sýningu. Sigurlaug Stefánsdóttir safnstjóri Bóka- og Héraðsskjalasafns og Íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggðasafnsins opnuðu sýninguna.