Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Byggðaráð ákvað það á fundi þann 7. janúar 2015 að leggja til við sveitarstjórn að staðfesta þá ákvörðun að Hlynur Sigursveinsson verði ráðinn sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar.
Hlynur er 47 ára gamall, er stúdent frá MH og stundaði nám við Florida Tech í Bandaríkjunum á árunum 1990-1994 og útskrifaðist þaðan með BSc. gráðu í fjármálafræðum sem „major“ og mannauðsstjórnun sem „minor“. Á árunum 1994-1995 stundaði hann nám við University of Central Florida í Bandaríkjunum og lauk þaðan meistaraprófi í hagfræði.


Hlynur hefur um 20 ára reynslu úr fjármálageiranum með aðkomu að flestum greinum atvinnulífsins. Undanfarin 5-6 ár hefur hann starfað hjá Íslandsbanka hf. í sérlánateymi og áður starfaði hann sem forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands hf.

Hlynur mun hefja störf 20. janúar.