Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Dalvíkurbyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið:
• Stjórnun og daglegur rekstur fræðslu- og menningarsviðs
• Umsjón með fræðslu-, íþrótta-, æskulýðs- og menningarmálum
• Áætlanagerð og stefnumótun
• Undirbúningur og eftirfylgni mála sem falla undir fræðsluráð og íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð
• Þátttaka í yfirstjórn sveitarfélagsins
• Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfið
• Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri skilyrði
• Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Leiðtogahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Framúrskarandi þjónustulund
• Góð tölvukunnátta
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti

Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar er með því besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Gildi sviðsins eru virðing, jákvæðni og metnaður.


Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2015. (Ath., var 30. nóvember 2015).

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is .


Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Þóra Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is ) og Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is ) hjá Capacent.