Sveitarstjórnarkosningar 2006

Sveitarstjórnarkosningar verða þann 27. maí næstkomandi og hafa nú öll framboð skilað inn endanlegum framboðslistum.

Félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga halda utan um upplýsingar sem tengjast kosningunum og má finna frekari upplýsingar um framboðslista í hverjum landshluta fyrir sig og framkvæmd kosninganna á vefnum www.kosningar.is.

Framboðslistarnir í Dalvíkurbyggð eru að þessu sinni fjórir. Frekari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar 2006 má jafnframt finna hér til vinstri undir tenglum.