Svarfaðadalsá kynnt í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 17. mars kl. 20:30,  munu þeir Gunnsteinn Þorgilsson og Gunnlaugur Sigurðsson kynna fyrir veiðimönnum leyndardóma Svarfaðardalsár í Framsóknarhúsinu á Akureyri. Gunnsteinn, sem er bóndi á Sökku í Svarfaðardal, þekkir ánna mjög vel og hefur oft gefið veiðimönnum góð ráð um veiðistaði og veiðiaðferðir. Gunnlaugur, bóndi á Klaufabrekkum, er mikill veiðirefur og fara margar sögur af fengsæld hans í ánni. 

Svarfaðadalsá er mjög vanmetin sem veiðiá en er þó tvímælalaust ein af veiðiperlum Eyjafjarðar. Ekki skemmir fyrir að hún er mjög ódýr valkostur enda kosta dagsleyfi þar aðeins 2-4 þúsund krónur. Sumarið 2008 veiddust þar um 400 bleikjur (stærst 2,4 kg) og 43 urriðar (stærst 3,1 kg).

Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Frétt fengin af www.dagur.net