Svanfríður bæjarstjóri út kjörtímabilið

Það hefur orðið að samkomulagi milli aðstandenda B lista og J lista í Dalvíkurbyggð, sem nú mynda meirihluta bæjarstjórnar, að endurskoða samstarfssamning sinn þannig að Svanfríður Jónasdóttir, J lista verði bæjarstjóri út kjörtímabilið, Hilmar Guðmundsson, B lista verði forseti bæjarstjórnar og Bjarnveig Ingvadóttir B lista formaður bæjarráðs.

Á næstu dögum verður gengið frá nýjum samstarfssamningi á milli aðila sem byggir m.a. á því ágæta starfi sem verið hefur á fyrri hluta kjörtímabilsins og þeim metnaði fyrir hönd sveitarfélagsins sem einkennt hefur störf meirihlutans til þessa.

Nánari upplýsinga veita oddvitar listanna:

Bjarnveig Ingvadóttir, 862 6896
Svanfríður Jónasdóttir, 862 1460