Sundnámskeið í Sundlaug Dalvíkur - SUMARIÐ 2021

Sundnámskeið í Sundlaug Dalvíkur - SUMARIÐ 2021

Sundnámskeið í Sundlaug Dalvíkur - SUMARIÐ 2021
Fyrir börn sex ára (fædd 2015) frá 5.– 10. júlí (alls 6 skipti)

  • Hver hópur er 45 mínútur í lauginni í senn.
  • Námskeiðin hefjast kl. 9 (fyrri hópur) og 10 (seinni hópur).
  • Hægt er að velja hvor tíminn hentar foreldrum og börnum betur.
  • 8 börn komast í hvorn hóp.

Námskeiðsgjald er kr. 5.000.-

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum ÆskuRækt og er 25% systkinaafsláttur veittur.

Mikilvægt er að börnin séu mætt 10 mínútum fyrir tíma.
Kennari er Helena Frímannsdóttir íþróttakennari.

Í gegnum tíðina eru ófá börn sem hafa sigrast á vatnshræðslu á þessum námskeiðum. Mörg börn læra sín fyrstu sundtök og enn aðrir bæta við fyrri kunnáttu. Frábær undirbúningur fyrir skólasundkennslu.

Kennslan fer að miklu leiti fram í leikjaformi. Aðaláherslan er að börnin aðlagist vatninu og að þau séu óhrædd við að hreyfa sig á sem fjölbreyttastan hátt í því. Reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir allra barna, en ekki má gleyma því að aldrei eru grunnatriðin of oft æfð. Foreldrum er velkomið að koma og fylgjast með sundtímum. En munið að hluti af því að efla sjálfstæði barnanna er að gefa þeim færi á að njóta sín óstudd og einbeita sér að fullu að leiðbeiningum kennara. Í lok námskeiðs ætlar hópurinn að bjóða ykkur að fylgjast með sér þar sem þau sýna hvað þau hafa lært á námskeiðinu. Þannig sjá foreldrar hvar börnin eru stödd sundlega séð.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á netfangið gislirunar@dalvikurbyggd.is