Sundnámskeið í Sundlaug Dalvíkur fyrir börn fædd 2006 og 2007

Sundnámskeið í Sundlaug Dalvíkur sumarið 2012.

Fyrir börn fimm ára(fædd 2007) frá 11.-16 júní (alls 6 skipti)

Fyrir börn sex ára (fædd 2006) frá 18.– 24. júní (alls 7 skipti)


Hver hópur er 45 mínútur í lauginni í senn.
Námskeiðin hefjast kl. 9. og eru á klukku tíma fresti.
Námskeiðsgjald fyrir börn fædd 2006 er 5.000 kr. og fyrir börn fædd 2007 kr. 4.700 kr. Námskeiðisgjald greiðist við skráningu og er 25% systkinaafsláttur veittur.
Mikilvægt er að börnin séu mætt 10 mínútur fyrir tíma .
Kennari er Helena Frímannsdóttir íþróttakennari.

Í gegnum tíðina eru ófá börn sem hafa sigrast á vatnshræðslu á þessum námskeiðum. Mörg börn læra sín fyrstu sundtök og enn aðrir bæta við fyrri kunnáttu. Frábær undirbúningur fyrir skólasundkennslu.

Kennslan fer að miklu leiti fram í leikjaformi. Aðaláherslan er að börnin aðlagist vatninu og að þau séu óhrædd við að hreyfa sig á sem fjölbreyttastan hátt í því. Reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir allra barna, en ekki má gleyma því að aldrei eru grunnatriðin of oft æfð. Foreldrum er velkomið að koma og fylgjast með sundtímum. En munið að hluti af því að efla sjálfstæði barnanna er að gefa þeim færi á að njóta sín óstudd og einbeita sér að fullu að leiðbeiningum kennara. Í lok námskeiðs munu þau bjóða ykkur að koma og fylgjast með sér þar sem þau sýna hvað þau hafa lært á námskeiðinu.

Upplýsingar er hægt að fá í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar í síma 466-3233.

Skráning fyrir námskeið barna fædd 2007 fer fram 6. – 9. júní í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar.
Skráning fyrir námskeið barna fædd 2006 fer fram í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar 6. – 15. júní.

Greiða verður námskeiðisgjald við skráningu.


Sundkveðja, starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Dalvíkur.