Sundnámskeið fyrir börn fædd 2014 og 2015

Börn á sundnámskeiði með Helenu fyrir nokkrum árum. Mynd tekin af facebooksíðu íþróttamiðstöðvar
Börn á sundnámskeiði með Helenu fyrir nokkrum árum. Mynd tekin af facebooksíðu íþróttamiðstöðvar

Fyrir börn sex ára (fædd 2014) frá 15.– 20. júní (alls 6 skipti)
Fyrir börn fimm ára(fædd 2015) frá 22.-26 júní (alls 5 skipti)

Hver hópur er 45 mínútur í lauginni í senn.
Námskeiðin hefjast kl. 9 (fyrri hópur) og 10 (seinni hópur).
Hægt er að velja hvor tíminn hentar foreldrum og börnum betur.

6 börn komast í hvorn hóp fyrir sig hjá yngri börnunum(fædd 2015).
8 börn komast í hópana tvo hjá eldri iðkendum (fædd 2014).

Námskeiðsgjald er kr. 5.000.-

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum ÆskuRækt og er 25% systkinaafsláttur veittur.

Mikilvægt er að börnin séu mætt 10 mínútum fyrir tíma.
Kennari er Helena Frímannsdóttir  íþróttakennari.

Í gegnum tíðina eru ófá börn sem hafa sigrast á vatnshræðslu á þessum námskeiðum. Mörg börn læra sín fyrstu sundtök og enn aðrir bæta við fyrri kunnáttu. Frábær undirbúningur fyrir skólasundkennslu.

Kennslan fer að miklu leiti fram í leikjaformi. Aðaláherslan er að börnin aðlagist vatninu og að þau séu óhrædd við að hreyfa sig á sem fjölbreyttastan hátt í því. Reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir allra barna, en ekki má gleyma því að aldrei eru grunnatriðin of oft æfð.  Foreldrum er velkomið að koma og fylgjast með sundtímum. En munið að hluti af því að efla sjálfstæði barnanna er að gefa þeim færi á að njóta sín óstudd og einbeita sér að fullu að leiðbeiningum kennara. Í lok námskeiðs ætla 2014 hópurinn að bjóða ykkur að fylgjast með sér þar sem þau sýna hvað þau hafa lært á námskeiðinu. Þannig sjá foreldrar hvar börnin eru stödd sundlega séð.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi - gislirunar@dalvikurbyggd.is