Sundfélagið Rán er 10 ára

Sundfélagið Rán verður 10 ára fimmtudaginn 21. febrúar. Í tilefni þess verður haldið uppá það á morgun miðvikudaginn 20. febrúar. Framfaramót verður haldið klukkan 16:30 í Sundlaug Dalvíkur og í lokin verður boðið uppá tertu. Mikil aukning hefur orðið á fjölda þeirra sem æfa sund með Sundfélaginu Rán og í vetur hafa 19 einstaklingar stundað æfingar þrisvar í viku.