Sunddagurinn mikli í Sundlaug Dalvíkur

Sunddagurinn mikli verður laugardaginn 18. september í Sundlaug
Dalvíkur. Frítt verður í sund á opnunartíma frá kl. 10 - 16.

Sundfélagið Rán mun veita viðurkenningar fyrir 200m, 400m og 1000m
sund. 

Í sundlauginni verður leiðbeining í sundi milli kl. 11 og 12.

Upplýsingar um starfsemi félagsins verða veittar á staðnum.

Tekið verður á móti skráningum nýrra félaga.

Dalvíkurbyggð og Sparisjóður Svarfdæla styrkja Sunddaginn Mikla.

Fyrir hönd framkvæmdaraðila
Elín Unnarsdóttir, formaður