Sunddagar SSÍ 2012 í sundlaug Dalvíkur

Vikuna 18 – 24. júní gefst gestum sundlaugarinnar á Dalvík möguleiki á að taka þátt í stuðningi við íslensku keppendurnar í sundi á Ólympíuleikunum. Tilgangurinn er að safna km til að ná vegalengdinni til London. Þátttökublöð eru í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar þar sem hver þátttakandi getur skráð sína vegalengd.

Glaðningur er frá Sundsambandi Íslands og Speedo fyrir þá þátttakendur í verkefni sem synda oftast eða lengst.

Sundkveðja, starfsfólk Íþróttamiðstöðvar.