Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar-flokkstjóri

Vinnuskólinn óskar eftir umsóknum í störf flokkstjóra sumarið 2009. Vinna flokkstjóra felst í umsjón með vinnu unglinga á aldrinum 14-16 ára. Viðkomandi þarf að hafa góðan þroska til að umgangast unglinga, geta haldið uppi aga í hóp og stjórnað verkefnavinnu. Æskilegt er að umsækjandi hafi ná 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til 19. mars.

Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra í síma 898 3490.

Umsóknareyðublöð má nálgast í Þjónustuveri eða á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is, undir tækni og umhverfisdeild. Þeim skal skilað inn í Þjónustuverið, Ráðhúsinu á Dalvík.


Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.