Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Vinnuskólinn óskar eftir verkstjóra og flokkstjórum fyrir sumarið 2013.

Vinna verkstjóra felst í daglegum rekstri Vinnuskólans eins og að deila út verkefnum, hafa eftirlit með vinnu og verkefnastöðu, hafa umsjón með vinnutímum og skrá ýmis gögn sem tilheyra Vinnuskólanum.

Vinna flokkstjóra felst í umsjón með vinnu unglinga á aldrinum 14-16 ára, annast verkstjórn, leiðbeina og aðstoða krakkana í verkefnum Vinnuskólans.

Viðkomendur þurfa að hafa góðan þroska til að umgangast unglinga, geta haldið uppi aga í hóp og stjórnað verkefnavinnu.


Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.


Umsóknarfrestur er til 20. mars.


Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra (Jón Arnar) í síma 898 3490.


Umsóknareyðublöð má nálgast í Þjónustuveri eða á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is, rafræn eyðublöð. Þeim skal skilað inn í Þjónustuverið, Ráðhúsinu.


Jón Arnar Sverrisson
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.