Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar.

Óskað er eftir umsóknum í starf  verkstjóra Vinnuskólans og í 6 störf flokkstjóra.

Verkstjóri Vinnuskólans.

            Sér um daglegan rekstur, fylgir eftir vinnu og verkefnum.

            Viðkomandi þarf helst að vera 25 ára eða eldri, þarf að hafa mikla hæfni í að                      stjórna og skipuleggja og góð mannleg samskipti eru æskileg.

Flokkstjórar.

            Vinna með 5 -7 krakka í hóp, á aldrinum 14-16 ára.

            Viðkomandi þarf að hafa þroska til að stjórna og vinna með unglingum.

Umsóknarfrestur er til 19. mars.

Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra í síma 898 3490.

Umsóknareyðublöð má nálgast  í Þjónustuveri eða á heimasíðu Dalvíkurbyggðar http://www.dalvik.is/, undir tækni og umhverfisdeild.

Þeim skal skilað inn í Þjónustuverið, Ráðhúsinu.

Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.