Sumarstarf við Byggðasafnið Hvol

Laust er til umsóknar sumarstarf við Byggðasafnið Hvol á Dalvík.

Um er að ræða starf í ágúst og fyrstu tvær vikurnar í júní 2011

Hæfniskröfur:
• Áhugi á sögu byggðarinnar og á safnamálum.
• Tungumálakunnátta er nauðsynleg – enska og annað mál
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þægilegt viðmót.
• Tölvukunnátta er æskileg.
• Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
• Stúdentspróf

Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga f.h. Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar (KJÖLUR).

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2011 Umsóknum er tilgreini m.a.aldur, menntun og fyrri störf skulu sendar á netfangið hvoll@dalvik.is  .

Allar nánari upplýsingar veitir Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins, í símum 892-1497 eða 466-1497