Sumarstarf við Byggðasafnið Hvol

Laust er til umsóknar sumarstarf við Byggðasafnið Hvol á Dalvík.


Um er að ræða fullt starf frá 1. júní til 1. september 2011. Vinnutími er frá kl. 11-18 alla daga og aðra hverja helgi.

Hæfniskröfur:
• Áhugi á sögu byggðarinnar og á safnamálum.
• Tungumálakunnátta er nauðsynleg – enska og annað mál
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þægilegt viðmót.
• Tölvukunnátta er æskileg.
• Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
• Stúdentspróf

Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga f.h. Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar (KJÖLUR).

Umsóknarfrestur er til og með 16. Mars 2011. Umsóknum er tilgreini m.a.aldur, menntun og fyrri störf skulu sendar á netfangið hvoll@dalvik.is  .

Allar nánari upplýsingar veitir Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins, í símum 892-1497 eða 466-1497