Sumarnámskeið barna að hefjast

Sundnámskeið fyrir börn fædd 2005 hefst mánudaginn 21. júní.

Leikjanámskeið fyrir börn fædd 2001-2004 hefst mánudaginn 21. júní. Tveir hópar, kl. 10 -12 og kl. 13 - 16. Hittumst við Sundlaug Dalvíkur dag hvern.

Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga  í Hringsholti hefjast mánudaginn 21. júní. Fyrsta námskeið sumarsins verður dagana 21.- 28. júní. Reiðnámskeiðin verða þrjú í sumar, þau síðari verða haldin dagana 5. - 12. júlí og 10. - 17. ágúst. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Hjörleifsson. Verð kr. 12.900.Systkinaafsláttur. Skráning og nánari upplýsingar fást í síma 466-1679 eða í farsímum 861-9631 og 616-9629.