Sumarnámskeið barna

Siglingaklúbburinn Nökkvi á Akureyri hélt námskeið í eina viku en kemur til með að halda annað námskeið milli verslunarmannahelgar og Fiskidags. Mikið fjör er búið að vera á sundnámskeiðum yngri barna sem Helena Frímannsdóttir íþróttakennari heldur í samvinnu við ÍÆMD og í þessari viku hófst leikjanámskeið barna f. 1998 - 2001, þar er það Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi sem heldur um stjórnartaumana.
Seinna í sumar verður síðan farið í ævintýraútilegu með börnum og unglingum f. 1997 og eldri en þá verður siglt  í Látur, farið í fjallgöngu og gist eina nótt. Þetta verður gert í síðustu viku júlí, skráning í Sundlaug Dalvíkur.

Sjá frekar um námskeiðin á síðu sundlaugarinnar: http://dalvik.is/stofnanir/sundlaug-dalvikur/