Sumarfrístund 2025
Sumarfrístund er fyrir 6-9 ára börn (1.-4.bekkur) frá klukkan 12:00-16:00 á virkum dögum á frá 10. júní til 4. júlí.
Í sumarfrístund er lögð áhersla á fjölbreytt viðfangsefni, skapandi verkefni, leiki, útivist og ferðir um nærumhverfi.
Sumarfrístund er í boði eftirfarandi vikur:
Vika 1. 10. - 13. júní (lokað á annan í hvítasunnu).
Vika 2. 16. og 18 - 20. júní (lokað 17. júní).
Vika 3. 23. - 27. júní.
Vika 4. 30. júní - 4. júlí.
Gjald fyrir sumarfrístund er 9100kr á viku (7280kr fyrir 4 daga viku)
Skráning fer fram á Abler - https://www.abler.io/shop/dalvikurbyggd undir sumarnámskeið
Afskráningafrestur á námskeiðsvikur sumarfrístundar er til mánudags í vikunni áður en námskeiðsvika hefst (afskráningarfrestur fyrir Viku 1 er til 2. júní og svo koll af kolli).
Nánari upplýsingar vegna sumarfrístundar má nálgast hjá Jónu Guðbjörgu, Frístundafulltrúa Dalvíkurbyggðar, í netfanginu jona.gudbjorg@dalvikurbyggd.is eða hjár fristund@dalvikurskoli.is
Fyrirkomulag:
Dagskrá Sumarfrístundar Dalvíkurbyggðar er yfir tímabilið 10. júní til 4. júlí.
Sumarfrístund er skipulögð með þeim hætti að hver vika er tilgreind sem eitt námskeið.
Sumarfrístund verður starfsræk í húsnæði Félagsmiðstöðvarinnar Dallas (Víkurröst), Skíðabraut 10, 620 Dalvík.
Dagskrá:
Hefjum alla daga í Víkurröst (Félagsmiðstöðinni Dallas) kl. 12:00
Síðan er farið í klúbba eða ferð dagsins
Degi lýkur í Víkurröst kl.16:00
Lagt er upp með fjölbreytta dagskrá þar sem áhersla er lögð á leiki, útivist og ferðir. Nákvæm dagskrá verður send til foreldra skráðra barna þegar nær dregur.
Við viljum biðja foreldra/forsjáraðila að senda börn klædd miðað við dagskrá sumarfrístundar og veður.
Námskeiðsgjald:
Dalvíkurbyggð sendir foreldrum reikning vegna sumarfrístundar.
Hægt er að nýta systkinaafslátt og frístundastyrk á námskeiðunum.
Hafa skal samband við jona.gudbjorg@dalvikurbyggd.is ef foreldri við nýta systkinaafslátt og/eða frístundastyrk vegna sumarfrístundar.
Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir
Frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar