Sumardagskipulag

Í dag byrjum við að vinna eftir nýju dagskipulagi, það er að finna undir HÓPAR og einnig má sjá hópaskiptinguna sem gildir í sumar á sama stað. Alla daga er einhver hópur í útikennslu og því er mjög mikilvægt að börnin séu með pollaföt og stígvél með sér í leikskólanum alla daga og föt til skiptanna.

Aðlögun barna af Krílakoti hófst í síðustu viku og gengur hún mjög vel, öll börn verða komin að fullu til okkar í lok þessarar viku.