Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í sumarafleysingar við íþróttamiðstöðina á Dalvík. Um er að ræða 100% starf frá byrjun júní til fram í miðjan ágúst. Æskilegast er að ráða bæði kyn vegna starfa í búningaklefum.

Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla.
Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Tuttugu ára eða eldri
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð (skv. 10. grein Æskulýðslaga)
  • Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða

 
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/. Valið er atvinnuumsókn og valið starfsmaður íþróttamiðstöðvar.

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar