Sumarafleysing í íþróttamiðstöðinni á Dalvík

Sumarafleysing í íþróttamiðstöðinni á Dalvík

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í sumarafleysingar við íþróttamiðstöðina á Dalvík. Um er að ræða 100% starf frá byrjun júní til og með 13. ágúst.

Helstu störf eru baðvarsla, samskipti við viðskiptavini, sundlaugagæsla, þrif og afgreiðsla.
Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni. 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Tuttugu ára eða eldri
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð

 

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl nk.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/. Valið er almenn umsókn og merkt við viðkomandi starf.

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar