Styrkur til plöntukaupa

Hitaveita Dalvíkur leggur árlega fjárhæð í sjóð til skógræktarmála.

Einstaklingum og félögum í Dalvíkurbyggð gefst kostur á að sækja um styrk til plöntukaupa úr þessum sjóði.

Í umsókninni skal eftirfarandi koma fram:

  • Stærð og lýsing á landi eða svæði sem planta skal í.
  • Tilgangur útplöntunar.
  • Fjöldi plantna sem sótt er um.
  • Trjátegundir.
  • Helsta ástæða umsóknar.
  • Hvernig standa skal að útplöntum.


Umsóknum skal skila til Þjónustuvers Dalvíkurbyggðar, merktum Garðyrkjustjóra fyrir 20. apríl.
Frekari upplýsingar gefur Garðyrkjustjóri í síma 898 3490

Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar.