STYRKUR TIL PLÖNTUKAUPA

STYRKUR TIL PLÖNTUKAUPA

Hitaveita Dalvíkur leggur árlega fjárhæð í sjóð til skógræktarmála. Einstaklingum og félögum í Dalvíkurbyggð gefst  kostur á að sækja um styrk til plöntukaupa úr þessum sjóði.

Í umsókninni skal eftirfarandi koma fram:

  • Stærð og lýsing á landi eða svæði sem planta skal í.
  • Tilgangur útplöntunar.
  • Fjöldi plantna sem sótt er um.
  • Trjátegundir.
  • Helsta ástæða umsóknar.
  • Hvernig standa skal að útplöntum.

Umsóknum skal skila í þjónustuver Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi, merktum Garðyrkjustjóra fyrir 13. apríl n.k.

Frekari upplýsingar gefur Garðyrkjustjóri í síma 898 3490.

                                  

                                                                    Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar.