Styrkir vegna námskostnaðar eða verkfæra-og tækjakaupa fatlaðra

SSNV málefni fatlaðra vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27.gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra – og tækjakaupa fatlaðra.

Heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sé atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði SSNV, ásamt greinargerð og ljósriti af örorkuskírteini, til viðkomandi félagsþjónustu en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.

Umsóknarfrestur er til 21. október 2011

Félagsþjónusta Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, sími 455 2400

Félags-og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi, sími 455 4100

Fjölskyldu- og þjónustusvið,félagsmál, Ráðhúsið, 550 Sauðárkóki, sími 455 6000

Félagsþjónusta Fjallabyggðar v/Siglufjarðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði, sími 464 9100

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsið, 620 Dalvík, sími 460 4900