Styrkir til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019 sem undirritaður var í febrúar sl. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og tekur við hlutverki Menningarráðs Eyþings, Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Vaxtarsamnings Norðausturlands og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.

Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.

Á sviði menningar:
• Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
• Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
• Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar:
• Verkefni sem stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar
• Verkefni sem til þess eru fallin að auka fjölbreytni atvinnutækifæra
• Verkefni sem stuðla að samstarfi atvinnulífs, háskóla og þekkingarstofnana
• Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun

Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is  á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí. Tilkynnt verður um úthlutun í júní. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra veita:
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menning@eything.is  sími 464 9935
Baldvin Valdimarsson baldvin@afe.is  sími 460 5701
Reinhard Reynisson reinhard@atthing.is  464 0415
Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is  sími 464 0415
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið uppbygging@eything.is

Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa og starfsmanna atvinnuþróunarfélaganna vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar verða sem hér segir:
Akureyri 20. og 22. apríl kl. 13-15 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð
Grímsey 24. apríl kl. 14-16 Félagsheimilinu Múla
Kópasker 27. apríl 10.30-12 Skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn 27. apríl kl. 13-15 Skrifstofu Norðurþings
Þórshöfn 28. apríl kl. 9-11 Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn
Húsavík 28. apríl kl. 14-16 Menningarmiðstöð Þingeyinga
Hrísey 4. maí kl. 10-11.30 Húsi Hákarla Jörundar
Grenivík 4. maí kl. 15-16 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
Laugum 5. maí kl. 10.30-12 Skrifstofu Þingeyjarsveitar
Mývatnssveit 5. maí kl. 13-14 Skrifstofu Skútustaðahrepps
Dalvík 6. maí kl. 10-12 Ráðhúsinu á Dalvík, 3.hæð
Ólafsfjörður 6. maí kl. 13-14 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Siglufjörður 6. maí kl. 14.30-16 Bæjarskrifstofu Siglufjarðar
Akureyri 7. maí kl. 9-16 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.